søndag den 10. februar 2008

Faste lavn, 3. feb.







Faste lavn er sambland af öskudegi og bolludegi hér í Danmörku. Börnin okkar klæddu sig auðvitað upp og okkur var boðið í bollukaffi til Láru nágrannakonu okkar. Yndælis vatnsdeigsbollur þar á ferð, með karamellusósu og tilheyrandi. Katrín var pönkari sem er hennar drauma,,look,, en vonum að ekkert verði úr pönkaradraumnum. Gauti klæddi sig upp sem svarthöfða úr Starwars myndunum, ekkert smá flottur. 'Ivar Franz var veikur og er ennþá, en hann á fínan latarbæjarbúning sem að mamma hans keypti á 'Islandi nú í janúar. Svo var haldið uppá Faste lavn í skólunum á mánudeginum, og í klúbbnum á miðvikudeginum. Við klikkuðum ekki á bollubakstri heima, og bakaðar voru bæði gerbollur og vatnsdeigsbollur með góðri aðstoð yngsta veika sonarins, 'Ivars. Hann elskar að baka þessi engill, elskar mömmu sína aldrei jafn mikið og þegar hún bakar. Þá er sko sagt mamma mín duglegur að baka, ég elska þig.

lørdag den 9. februar 2008

Ættfræði hornið



Fyrst verð ég að biðja alla þá sem heimsækja síðuna okkar afsökunar á því hversu löt við höfum verið að skrifa á bloggið. Það er vel við hæfi að byrja á einhverju nýju á nýbyrjuðu ári. Ég hef því ákveðið að ríða á vaðið með ættfræðihornið. Þessar myndir gróf ég upp (fékk lánaðar af photo.is) af afa mínum heitnum honum Antoni Axelssyni flugstjóra. Hann er til hægri á fyrstu myndinn þar sem hann situr á flugbát og á þeirri seinni er hann til vinstri, sem var tekið við það tækifæri þegar önnur þota í eigu íslendinga kom hingað til lands og var hann flugstjóri í þeirri ferð.
Það sem helst kemur upp í hugann þegar ég hugsa um afa minn eru skemmtilega sundferðir í sundhöll Reykjavíkur, flugferð í þotu milli Reykjavíkur og Akureyrar þegar ég var 9.ára og fékk að sitja með afa í flugstjórnar klefanum, ásamt ógrynni af wrigleys tyggjói sem afi átti alltaf í skúffunni hjá sér. Ef ég man rétt þá var afi fyrsti íslendingurinn sem tók réttindi til að fljúga þyrlu.
Blessuð sé minning hans.

Í næsta ættfræði horni er ætlunin að birta nokkra áratuga gamlar myndir af móður minni, Valdísi Antonsdóttur Hjúkrunarfræðingi sem ég fann nýverið í geymslunni hjá mér og er að vinna að því að skanna inn í tölvuna og lagfæra.
Kveðja
Arnar Heimir Jónsson

mandag den 21. januar 2008

Anton frændi og Katrín


Hér er ein nokkra ára gömul mynd af þeim frændsystkynum Antoni Andra og Katrínu Valdísi að klappa kettinum í húsdýragarðinum. Anton ásamt bróður sínum Pálma eru í Breiðagerðis skóla og feta þar með í slóð ömmu Valdísar sem var þar fyrir nokkrum árum.

Mamma er best


Jæja þá erum við búnir að vera einir heima í tæpa viku. Mamma og katrín fóru til íslands til að vera við útför ömmu Guðlaugar sem lést á 97.aldursári og fór útför hennar fram í Akurreyrarkirkju á föstudaginn var. Blessuð sé minning hennar.
Ég setti eina mynd til gamans af ívari og mömmu sinni. Hann talar oft um hana enn er alveg sáttur við að hafa stóra bróður og pabba í bili þó mamma sé alltaf best.

lørdag den 12. januar 2008

Hér er video af Gauta með uppáhaldinu sínu.