Ívar Franz okkar var þriggja ára í dag, 23. febrúar og óskum við honum innilega til hamingju með afmælið sitt. Hver hefði trúað því fyrir ári síðan að eftir ár væri hann orðinn talandi á dönsku og farinn að syngja eins og engill sem að hann gerir svo sannarlega. Hann átti yndislegann afmælisdag og fékk alls 17 gesti til sín, ekki slæmt það. Hann fékk sjálfur að skreyta bangsakökuna sína, og sést á myndinni hversu falleg hún var. Takið eftir einbeitingarsvipnum á honum ! Þökkum við gestum okkar fyrir komuna og fallegar gjafir til stráksins okkar. Afmælisbarnið sofnaði svo vært um kl. tíu eftir góðann dag, hann fékk að fara í mömmu og pabba rúm í nýja bolnum frá Ragnheiði frænku.
Drageyri eða Dragör pa dansk er á suðausturhluta Amager og var á miðöldum mikilsverð síldveiðihöfn þar sem söltuð var síld og seld víða um heim. Þegar síldveiði minnkaði varð Drageyri einkum kunn sem hafnsögumannsbær. Lengi lögðu skip Íslands upp frá Drageyri og lætur Halldór Laxness Jón Hreggviðsson bónda á Rein leggja upp í síðustu ferð sína til Íslands í skáldsögunni Íslandsklukkunni með þeim orðum að það sé góðs viti að leggja af stað til Íslands frá Drageyri. Við heimsóttum staðinn með Mundu á Fimmtudaginn. Það var smá svona sigló síldar stemmning í bænum. Þetta er mjög vinalegur bær með fallegum byggingum og smá miðbæ. Við fórum líka út í gamallt virki frá því um 1914 og þar var tekinn mynd af Katrínu og Gauta, í baksýn má sjá brúnna sem tengir Danmörk við Svíþjóð.
Í síðustu viku var vetrarfrí í skólanum. Við höfum gert margt skemmtilegt í fríinu. Við fórum í keilu, og með Mundu til Dragor. Einnig fórum við í Bió og í dag fórum við í ZOO. Það var gaman að sjá öll dýrin. Ljónin voru að gæða sér á einni belju og Skógarbirnirnir vildu ekki láta taka mynd af sér. Geiturnar eru alltaf mjög vinalegar við Ívar Franz.
'A laugardaginn var ákváðum við Gauti að eiga saman dag, bara við tvö. Ferðinni var heitið niður í bæ, leyfði ég stráknum að ráða og hann valdi að fara í sívalaturninn á Köbmagergade (milli striks og Nörreport.) Þetta þótti honum mjög gaman og flott að horfa yfir borgina fögru. Svo enduðum við á veitinga stað,, Italiano pizzeria,, eithvað fyrir okkur. Snæddum þar dýrindis pizzur og ískalt kók með sítrónu í. ER hægt að gera mikið betur, en við gerðum þann samning okkar á milli að ég mætti kíkja í nokkrar skóbúðir og hann mátti fara í allar dótabúðirnar sem á vegi okkar var. Svo hann valdi sér smá lego og dreka hálsmen í HM !! Keypti mér enga skó, áttaði mig skyndilega á því að ég á flott skósafn sem að ekki er nauðsynlegt að bæta inní strax..kannski eftrir 1 mán eða svo. Hér kemur smá fróðleikur um sívalaturninn(maðurinn minn er af svo góðum ættum segir systir hans svo nú tekur hann við !)
Sívaliturn eða Rundetarn er ein af sérkennilegustu byggingum borgarinnar og er hluti af þrenningarkirkjunni. Turninn var vígður árið 1637 og átti í fyrstu að verða stjörnu athugunar stöð. Segir sagan að árið 1716 hafi Pétur mikli rússakeisari riðið upp turninn í fylgt Katrínar miklu sem hann dró í eftirvagni. Glæsilegt útsýni yfir Kaupmannahöfn og nágrenni blasir við þegar komið er upp á topp turnsins.
Árið 2000 fórum við fjölskyldan til Danmerkur að heimsækja ættingja. Þar á meðal Jón Axel frænda og fjölskyldu. Þessar myndir eru úr þeirri ferð og við fengum þær sendar frá Elsu frænku. Þó við höfum ekki stoppað nema einn dag hjá frændfólkinu er þetta enn minnistæður dagur. Það var virkilega gaman að heimsækja þau og svo var veðrið frábært, enda fóru frænkurnar Jenný og Katrín á ströndina.