lørdag den 9. februar 2008

Ættfræði hornið



Fyrst verð ég að biðja alla þá sem heimsækja síðuna okkar afsökunar á því hversu löt við höfum verið að skrifa á bloggið. Það er vel við hæfi að byrja á einhverju nýju á nýbyrjuðu ári. Ég hef því ákveðið að ríða á vaðið með ættfræðihornið. Þessar myndir gróf ég upp (fékk lánaðar af photo.is) af afa mínum heitnum honum Antoni Axelssyni flugstjóra. Hann er til hægri á fyrstu myndinn þar sem hann situr á flugbát og á þeirri seinni er hann til vinstri, sem var tekið við það tækifæri þegar önnur þota í eigu íslendinga kom hingað til lands og var hann flugstjóri í þeirri ferð.
Það sem helst kemur upp í hugann þegar ég hugsa um afa minn eru skemmtilega sundferðir í sundhöll Reykjavíkur, flugferð í þotu milli Reykjavíkur og Akureyrar þegar ég var 9.ára og fékk að sitja með afa í flugstjórnar klefanum, ásamt ógrynni af wrigleys tyggjói sem afi átti alltaf í skúffunni hjá sér. Ef ég man rétt þá var afi fyrsti íslendingurinn sem tók réttindi til að fljúga þyrlu.
Blessuð sé minning hans.

Í næsta ættfræði horni er ætlunin að birta nokkra áratuga gamlar myndir af móður minni, Valdísi Antonsdóttur Hjúkrunarfræðingi sem ég fann nýverið í geymslunni hjá mér og er að vinna að því að skanna inn í tölvuna og lagfæra.
Kveðja
Arnar Heimir Jónsson

3 kommentarer:

Arnar Olafsson sagde ...

Góðan daginn. Mikið þótti okkur Helgu gaman að lesa þetta fyrsta ættfræðihorn. Vonandi gengur þér vel að skanna inn myndirnar af henni móður þinni og lagfæra. Það er þó óþarfi að lagfæra þær mjög mikið þar sem ég veit að móðir þín var mjög hugguleg ung kona, og er auðvitað enn. Kær kveðja.

jennyljosa sagde ...

Já mikið dámar mér, ættfræðihorn, þú massar það.
Bíð spennt eftir fleiri merku fólki sem þú tekur fyrir. Og eins og þú veist, og verður ekki of oft tuggið þá er þetta ein merkasta fjölskylda landsins, þekkt fyrir hógværð, miklar gáfur og síðast en ekki síst fegurð.

kv Jenný

Elsa sagde ...

Gaman af þessu ættfræðihorni. :) Keep up the good work.